Tóbakslaus bekkur er samkeppni haldin í 7., 8. og 9. bekk og er ætlað að virkja samstöðu unglinga gegn notkun á tóbaki. Veggspjaldið ásamt öðru kennsluefni í sama ofurhetjustíl hvatti nemendur til að senda inn í keppnina hugmyndir í formi veggspjalda, auglýsinga, stuttmynda eða fræðsluefnis um tóbaksvarnir, nota hugmynda- flugið, skrifa sögur þessara persóna eða skrifa alveg nýjar persónur sem móta tóbakslausa framtíð.