Herferð fyrir Arion banka til að eigna sér framtíðarhugtakið. Hugmyndin var að snerta á tilfinningum sem foreldrar þekkja og geta stundum verið svolítið háfleygar. Við getum ekki vitað hvað gerist í framtíðinni en við getum búið okkur undir hana. Bankastarfsemi gengur að stórum hluta út á það að búa fólk undir framtíðina og með þessari auglýsingu vildum við skapa hugrenningartengsl milli hugmynda um framtíðina og bankans sem hjálpar þér að búa þig undir hana.