Ljósleiðarinn vildi kynna það metnaðarfulla verkefni sem þau eru þegar byrjuð á: að ljósleiðaravæða allt landið. Markmiðið er að við höfum öll jafnan aðgang að þeim möguleikum sem felast í framtíðinni. Að tækniframfarir framtíðarinnar rati til allra. Við vildum skapa fallegan heim þar sem þræðir tengja saman raunheima, sköpunargleði og möguleika framtíðarinnar. Þannig vildum við sýna hvernig Ljósleiðarinn gerir allt mögulegt mögulegt.
Benedict Andrews leikstýrði og Aron Bergmann bjó til listaverkin úr endalausum fjölda þráða. Eli Arenson var að baki linsunni og Gísli Galdur skapaði hljóðheim og tónlist. Republik sá um framleiðslu.