Framtíðin er snjöll. Veitur eru að skipta út öllum orkumælum fyrir nýja snjallmæla hjá viðskiptavinum sínum. Verkefnið mun taka nokkur ár og á þeim tíma þarf að heimsækja hvert einasta íbúðarhús á starfssvæði Veitna. Við ákváðum að leggja áherslu á helsta kost þess að fá snjallmæla í stað gömlu mælanna: að þurfa ekki að lesa af, en snjallmælarnir senda notkunarupplýsingar beint til Veitna.